S04E48 | Hryðjuverkamálið, Quang Le og baráttan um ESB | Sveinn Andri Sveinsson

13. ágúst 2026 -

Sveinn Andri Sveinsson lögmaður er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu.

Í fyrri hluta viðtalsins ræða þeir svokallaða hryðjuverkamálið en Sveinn Andri var verjandi annars mannanna sem sakaðir voru um að hafa undirbúið hryðjuverk hér á landi. Málið endaði með sýknu af hryðjuverkaákærunum eftir langt og umdeilt dómsferli.

Sveinn Andri fer yfir upphaf rannsóknarinnar, blaðamannafund ríkislögreglustjóra og þá ákvörðun að lýsa því yfir að Íslendingum hefði verið bjargað frá hryðjuverki. Að hans mati einkenndist framhald málsins af tilraunum lögreglu og ákæruvalds til að réttlæta harkalegar aðgerðir í upphafi. Hann telur að lögreglan verði að draga lærdóm af málinu og hætta að boða til stórra blaðamannafunda áður en rannsókn liggur fyrir.

Þá er rætt ítarlega um mál víetnamska athafnamannsins Quang Le, sem hefur meðal annars verið rannsakaður vegna gruns um mansal, peningaþvætti og brot á útlendingalögum. Sveinn Andri gagnrýnir hversu lengi rannsóknin hefur staðið, lokun fyrirtækja og bankareikninga, frystingu eigna og langvarandi farbann. Hann spyr hvort gengið hefði verið jafnlangt hefði íslenskur fyrirtækjaeigandi átt í hlut og lýsir áhyggjum af þeim þrýstingi sem erlendir starfsmenn kunni að hafa orðið fyrir við rannsókn málsins.

Í síðasta og lengsta hluta viðtalsins takast Frosti og Sveinn Andri síðan á um Evrópusambandið, evruna og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.

Sveinn Andri hefur lengi verið eindreginn stuðningsmaður ESB-aðildar. Hann telur EES-samninginn fela í sér meira raunverulegt fullveldisframsal en full aðild og segir Íslendinga hafa greitt gríðarlegt verð fyrir krónuna í formi hárra vaxta. Frosti dregur þær forsendur í efa og spyr meðal annars hvort upptaka evru myndi leiða til lægra launastigs, hvort Ísland gæti tryggt full yfirráð yfir sjávarauðlindinni og hversu mikið vald færðist til stofnana og dómstóla Evrópusambandsins.

Úr verður löng, lífleg og hreinskilin rökræða um vexti, kaupmátt, fullveldi, sjávarútveg, orkumál og það hvort Íslendingar eigi að segja „já til að sjá“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni.

S04E34-Harmageddon-Still
S04E34 | Hallalausu fjárlögin: Núllið þeirra – reikningurinn okkar
Ríkisstjórnin fagnar hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027. En þegar betur er að gáð fæst núllið meðal annars með hærri sköttum og gjöldum, rýrari...
S04E55-Debbie-Still5
S04E55 | Debbie Hayton: „Transkonur eru karlar – sættið ykkur við það“
Debbie Hayton er breskur kennari, blaðamaður og verkalýðsbaráttukona sem gekkst sjálf undir kynleiðréttingu árið 2012. Þrátt fyrir það hefur hún orðið ein ötulasta...
S04E33-Harmageddon-Still1
S04E33 | Við viljum ráða okkur sjálf
Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðunum erlendis við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Víða er henni fagnað sem verðskuldaðri áminningu til Evrópusambandsins um að...
S04E54-Spjallid-Bjarni-Still1
S04E54 | Bjarni Benediktsson: „Ríkisstjórnin er augljóslega í brekku“
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, sest hjá Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um stöðu efnahagsmála, uppnám á vinnumarkaði...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.