S04E49 | Geir H. Haarde: Ísland gæti fórnað EES fyrir viðræður sem enda með engu

17. ágúst 2026 -

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og fjármálaráðherra, varar við því að áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið séu alls ekki áhættulaus leið til að „kíkja í pakkann“.

Geir segir að já í þjóðaratkvæðagreiðslunni þýði að Ísland sæki formlega um aðild að ESB. Viðræðurnar gætu kostað stórfé, tekið mikinn tíma frá íslenska stjórnkerfinu og skapað hættu á að núverandi staða Íslands innan EES veikist.

Í verstu sviðsmyndinni gætu Norðmenn farið sínar eigin leiðir gagnvart ESB á meðan íslensk stjórnvöld einbeita sér að aðildarviðræðunum. Ef viðræðurnar sigla síðan í strand gæti Ísland, að mati Geirs, staðið eftir „úti á berangri“ án núverandi EES-fyrirkomulags og án aðildarsamnings við ESB.

Geir telur jafnframt sáralitlar líkur á að Ísland fái varanlegar undanþágur í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum. Yfirráð Íslands yfir sjávarauðlindinni séu ekki aðeins venjulegt hagsmunamál heldur tilvistarspurning fyrir þjóðina.

Þá ræðir hann fullyrðingar um að evran muni sjálfkrafa færa íslenskum heimilum lægri vexti. Engin trygging sé fyrir því að vextir lækki með upptöku evru og lægri vextir geti auk þess þrýst fasteignaverði upp. Geir segist geta horft í augun á ungu fólki með há húsnæðislán og sagt því að sjálfstæð peningastefna sé þess virði – enda sé ekki sama hverju Ísland þurfi að fórna í staðinn.

S04E34-Harmageddon-Still
S04E34 | Hallalausu fjárlögin: Núllið þeirra – reikningurinn okkar
Ríkisstjórnin fagnar hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027. En þegar betur er að gáð fæst núllið meðal annars með hærri sköttum og gjöldum, rýrari...
S04E55-Debbie-Still5
S04E55 | Debbie Hayton: „Transkonur eru karlar – sættið ykkur við það“
Debbie Hayton er breskur kennari, blaðamaður og verkalýðsbaráttukona sem gekkst sjálf undir kynleiðréttingu árið 2012. Þrátt fyrir það hefur hún orðið ein ötulasta...
S04E33-Harmageddon-Still1
S04E33 | Við viljum ráða okkur sjálf
Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðunum erlendis við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Víða er henni fagnað sem verðskuldaðri áminningu til Evrópusambandsins um að...
S04E54-Spjallid-Bjarni-Still1
S04E54 | Bjarni Benediktsson: „Ríkisstjórnin er augljóslega í brekku“
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, sest hjá Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um stöðu efnahagsmála, uppnám á vinnumarkaði...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.