S04E52 | Egill Almar: Ísland hefur nær ekkert vaxið í tíu ár

25. ágúst 2026 -

Egill Almar Ágústsson hefur á síðustu misserum vakið athygli fyrir skrif sín um íslenska krónu, verðtryggingu, vexti og hagvöxt. Hann telur að Ísland standi frammi fyrir miklu stærra efnahagsvandamáli en flestir geri sér grein fyrir: Hagvöxtur á mann hafi verið sáralítill síðasta áratuginn og íslenskt atvinnulíf búi ekki til nægilega mörg ný og vel launuð störf.

Egill vill að Ísland fari í sókn, opni hagkerfið betur fyrir erlendri fjárfestingu og tengist evrópsku efnahagslífi með mun dýpri hætti. Hann telur smæð krónunnar, háa vexti og verðtryggingu skapa óstöðugt og óhagkvæmt viðskiptaumhverfi – og sér aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru sem mikilvægan hluta lausnarinnar.

Frosti er ósammála. Hann bendir á sterka stöðu þjóðarbúsins, mikinn vöxt hugverkaiðnaðar, árangur íslenskra útflutningsfyrirtækja og þau mikilvægu stjórntæki sem fylgja eigin gjaldmiðli. Hann telur Ísland geta ráðist gegn verðbólgu, eflt nýsköpun og skapað verðmæt störf án þess að ganga inn í Evrópusambandið.

Úr verður löng og hreinskilin rökræða um ESB og evruna, kosti og galla krónunnar, stöðu íslenska hagkerfisins, erlenda fjárfestingu, háa vexti og fullyrðingar Egils um að bankar og fasteignafélög geti hagnast á verðbólgunni.

Er Ísland í raun að dragast aftur úr umheiminum – eða hefur íslenska hagkerfið sýnt að þjóðin stendur betur utan Evrópusambandsins?

S04E33-Harmageddon-Still1
S04E33 | Við viljum ráða okkur sjálf
Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðunum erlendis við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Víða er henni fagnað sem verðskuldaðri áminningu til Evrópusambandsins um að...
S04E54-Spjallid-Bjarni-Still1
S04E54 | Bjarni Benediktsson: „Ríkisstjórnin er augljóslega í brekku“
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, sest hjá Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um stöðu efnahagsmála, uppnám á vinnumarkaði...
S04E53-Spjallid-RichardWerner-Still1
S04E53 | Richard Werner: ESB-aðild alvarleg mistök fyrir Ísland
Richard Werner, þýskur hagfræðiprófessor og alþjóðlega viðurkenndur sérfræðingur í bankastarfsemi, peningasköpun og peningamálum, varar Íslendinga eindregið við því að ganga í Evrópusambandið og...
S04E32-Harmageddon-Still1
S04E32 | Athygli ríkisstjórnarinnar á að vera á efnhagsmálum
Á baráttufundi já-hliðarinnar í vikunni talaði Kristrún á þann veg að helst mætti skilja að hún væri búin að gefast upp á verkefninu,...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.