S04E54 | Bjarni Benediktsson: „Ríkisstjórnin er augljóslega í brekku“

1. september 2026 -

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, sest hjá Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um stöðu efnahagsmála, uppnám á vinnumarkaði og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB-viðræður.

Bjarni segir niðurstöðuna „hart nei“ og mikið áfall fyrir Evrópusinnuðu stjórnarflokkana. Hann telur ríkisstjórnina vera í brekku eftir að verðbólga og vextir tóku aftur að hækka, atvinnuleysi jókst og þjóðin hafnaði stærsta stefnumáli hennar.

Í viðtalinu er farið ítarlega yfir orsakir verðbólgunnar, 8% stýrivexti, forsendubrest kjarasamninga og þær breytingar sem Bjarni telur nauðsynlegar á íslenska vinnumarkaðslíkaninu. Hann segir laun hafa hækkað langt umfram það sem upphaflega var samið um, á meðan framleiðniaukningin sem átti að standa undir hækkununum hafi ekki skilað sér.

Bjarni gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að leggja of mikla áherslu á nýja skatta og tekjuöflun í stað þess að draga úr útgjöldum og ráðast í varanlegar kerfisbreytingar. Hann telur mikil tækifæri felast í stafrænni þjónustu, gervigreind og betri nýtingu fjármuna hjá ríki og sveitarfélögum.

Þá ræða Frosti og Bjarni meðal annars:

  • hvort hægt sé að halda lífi í núverandi kjarasamningum
  • ábyrgð fyrirtækja, stjórnvalda og verkalýðshreyfingarinnar
  • veikleika íslenska vinnumarkaðslíkansins
  • víðtæka notkun verðtryggingar
  • stöðuna á húsnæðis- og byggingarmarkaði
  • hugmyndir Richard Werner um útlán banka og peningamagn
  • hvort Seðlabankinn hafi átt að hækka vexti í 8%
  • skattahækkanir og skort á aðhaldi í ríkisrekstri
  • niðurstöðu ESB-kosninganna og framtíð íslensku krónunnar
  • stöðu ríkisstjórnarinnar eftir ósigurinn
  • lífið eftir stjórnmálin og ástæður þess að Bjarni hætti
  • hótanir, áreiti og vaxandi hörku í garð stjórnmálamanna
  • Ítarlegt samtal um þá stóru spurningu sem nú blasir við þjóðinni: Hvernig geta Íslendingar náð tökum á verðbólgu, lækkað vexti og tryggt áframhaldandi hagvöxt og sterk lífskjör?

Umsjón: Frosti Logason
Gestur: Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

S04E33-Harmageddon-Still1
S04E33 | Við viljum ráða okkur sjálf
Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðunum erlendis við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Víða er henni fagnað sem verðskuldaðri áminningu til Evrópusambandsins um að...
S04E53-Spjallid-RichardWerner-Still1
S04E53 | Richard Werner: ESB-aðild alvarleg mistök fyrir Ísland
Richard Werner, þýskur hagfræðiprófessor og alþjóðlega viðurkenndur sérfræðingur í bankastarfsemi, peningasköpun og peningamálum, varar Íslendinga eindregið við því að ganga í Evrópusambandið og...
S04E32-Harmageddon-Still1
S04E32 | Athygli ríkisstjórnarinnar á að vera á efnhagsmálum
Á baráttufundi já-hliðarinnar í vikunni talaði Kristrún á þann veg að helst mætti skilja að hún væri búin að gefast upp á verkefninu,...
S04E52-Spjallid-EgillAlmar-Stilla1
S04E52 | Egill Almar: Ísland hefur nær ekkert vaxið í tíu ár
Egill Almar Ágústsson hefur á síðustu misserum vakið athygli fyrir skrif sín um íslenska krónu, verðtryggingu, vexti og hagvöxt. Hann telur að Ísland...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.