S04E57 | Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“

21. september 2026 -

Jón Helgi Egilsson, doktor í peningamálahagfræði, segir að Ísland geti boðið húsnæðislán með föstum vöxtum til mun lengri tíma en nú tíðkast. Hann tók þátt í vinnu á vegum fyrri ríkisstjórnar sem miðaði meðal annars að því að gera tíu ára vaxtafestingu að raunhæfum valkosti fyrir íslenska lántakendur. Sú vinna hafi hins vegar verið stöðvuð eftir að Daði Már Kristófersson tók við embætti fjármálaráðherra.

Í viðtalinu ræðir Jón Helgi hvers vegna eigin gjaldmiðill sé mikilvægt hagstjórnartæki fyrir lítið og opið hagkerfi og segir upptöku evru jafngilda fastgengi sem henti Íslandi illa. Hann telur að eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar eigi stjórnvöld að einbeita sér að því að bæta íslenska peninga- og lánakerfið.

Þá útskýrir hann hvernig viðskiptabankar búa til nýja peninga með útlánum, hvers vegna ráðstöfun lánsfjár getur ýtt undir verðbólgu og eignabólur og hvað megi læra af hugmyndum hagfræðingsins Richards Werners.

Jón Helgi fjallar einnig um tæknibreytingar sem geti rofið forréttindastöðu bankanna, gert fólki kleift að varðveita rafrænar eignir utan hefðbundins bankakerfis og aukið samkeppni í fjármálaþjónustu. Hann varar jafnframt við þeirri miðstýringu sem geti fylgt fyrirhugaðri stafrænni evru Evrópska seðlabankans og segir hættulegt að byggja kerfi sem stjórnvöld gætu síðar misnotað.

S04E59-Spjallid-Gunnar-Still1
S04E59 | „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan
Gunnar Dan, hlaðvarpsstjórnandi og rithöfundur, snýr aftur í Spjallið með nýja bók, UFO 202, og segir óhætt að fullyrða að mikið hafi breyst...
S04E37-Harmageddon-Still1
S04E37 | Sadó-masókismi íslenskra kjósenda
Í Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem sýna engin merki...
S04E58-Spjallid-OliBjorn-Still2
S04E58 | Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“
Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri, er gestur Spjallsins að þessu sinni. Tilefnið er ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar...
S04E36-Harmageddon-Still
S04E36 | Ísland á bandarísku áhrifasvæði
Fyrir nokkrum vikum var ágengni Trumps gagnvart Grænlandi sögð sýna að Ísland gæti ekki lengur treyst Bandaríkjunum og yrði að leita skjóls í...
Scroll to Top

Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.