S04E58 | Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“

29. september 2026 -

Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri, er gestur Spjallsins að þessu sinni.

Tilefnið er ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun, en samtalið vindur fljótt upp á sig og verður að víðtæku uppgjöri við íslensk stjórnmál og þróun samfélagsins undanfarna áratugi.

Óli Björn ræðir hvers vegna hægrimenn misstu sjálfstraustið og hugmyndafræðilegan kraft, hvernig Sjálfstæðisflokkurinn fjarlægðist hluta af sínum gömlu rótum og hvers vegna hann telur hörð hugmyndafræðileg átök nauðsynleg í heilbrigðu lýðræðissamfélagi.

Rætt er um ríkisrekstur og einkaframtak, skattkerfið, heilbrigðisþjónustu, Ríkisútvarpið og þá róttæku hugmynd Óla Björns að gjörbreyta hlutverki þess. Þá er farið ítarlega yfir útlendingamálin, breytingarnar á útlendingalögum árið 2016 og þann pólitíska rétttrúnað sem hann telur hafa haft mikil áhrif á stjórnmál síðustu ára.

Undir lokin rifjar Óli Björn upp átökin innan ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna, hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur og ákvörðun sína um að hætta sem formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

Ítarlegt samtal um frelsi einstaklingsins, vald ríkisins, hugmyndafræði og hvað fór úrskeiðis hjá íslenskum hægrimönnum.

S04E59-Spjallid-Gunnar-Still1
S04E59 | „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan
Gunnar Dan, hlaðvarpsstjórnandi og rithöfundur, snýr aftur í Spjallið með nýja bók, UFO 202, og segir óhætt að fullyrða að mikið hafi breyst...
S04E37-Harmageddon-Still1
S04E37 | Sadó-masókismi íslenskra kjósenda
Í Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem sýna engin merki...
S04E36-Harmageddon-Still
S04E36 | Ísland á bandarísku áhrifasvæði
Fyrir nokkrum vikum var ágengni Trumps gagnvart Grænlandi sögð sýna að Ísland gæti ekki lengur treyst Bandaríkjunum og yrði að leita skjóls í...
S04E57-Spjallid-JonHelgi-Still1
S04E57 | Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“
Jón Helgi Egilsson, doktor í peningamálahagfræði, segir að Ísland geti boðið húsnæðislán með föstum vöxtum til mun lengri tíma en nú tíðkast. Hann...
Scroll to Top

Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.