S04E59 | „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan

5. október 2026 -

Gunnar Dan, hlaðvarpsstjórnandi og rithöfundur, snýr aftur í Spjallið með nýja bók, UFO 202, og segir óhætt að fullyrða að mikið hafi breyst frá því hann settist síðast niður með Frosta til að ræða eitt dularfyllsta viðfangsefni samtímans.

Undanfarin misseri hafa fyrrverandi starfsmenn bandaríska hersins og leyniþjónustustofnana stigið fram með ótrúlegar frásagnir af óþekktum fljúgandi fyrirbærum, meintum endurheimtum flýgildum og verum sem eiga ekki að vera af mannlegum uppruna. Samhliða hafa málefni UAP-fyrirbæra ratað inn í bandaríska þingið og opinber gögn og myndbönd verið birt.

Gunnar hefur sökkt sér ofan í þennan heim og segist í dag hundrað prósent sannfærður um að hér sé eitthvað raunverulegt á ferðinni – þótt stóra spurningin sé hvað það sé í raun.

Í þættinum ræða Frosti og Gunnar meðal annars nýjustu vendingar í UFO/UAP-málum, frásagnir David Grusch, meintar verur og flýgildi, dularfull fyrirbæri neðansjávar og möguleikann á að sumar þeirra vera sem menn hafa talið „geimverur“ komi alls ekki utan úr geimnum heldur úr öðrum víddum – eða hafi jafnvel verið hér á jörðinni miklu lengur en mannkynið.

Samtalið færist síðan út fyrir hinn hefðbundna UFO-heim og inn á mörk meðvitundar og efnisveruleika. Gunnar segir frá eigin reynslu af DMT og ayahuasca, kynnum sínum af því sem hann upplifði sem verur í öðrum veruleika og þeirri hugmynd að hugvíkkandi reynsla, trúarbrögð, meðvitund og UFO-fyrirbærið kunni að tengjast með einhverjum hætti.

Ný bók Gunnars, UFO 202, tekur einmitt meira á þessum andlegu og heimspekilegu spurningum en fyrri bókin: Hvað er meðvitund? Hvað er tími? Hvaðan komum við? Og er mögulegt að veruleikinn sem við upplifum dagsdaglega sé aðeins lítið brot af einhverju miklu stærra?

Óvenjulegt, opinskátt og á köflum algjörlega lygilegt samtal um spurningar sem fyrir örfáum árum hefðu varla ratað inn í alvarlega umræðu.

S04E42 Harmageddon Still1
S04E42 – Um styrkhæf sjónarmið meirihlutans
Til er fólk sem telur að fjölmiðlastyrkur stjórnvalda eigi eingöngu að ná til þeirra miðla sem ganga í takt við ákveðnar meginstraumslínur í...
S04E67-Spjallid-Brynjar-Still1
S04E67 – „ÞETTA ER SPILLING!“ – Brynjar Karl hjólar í Reykjavíkurborg
Brynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari og forsvarsmaður íþróttafélagsins Aþenu, mætir í Spjallið og fer yfir harðvítugar deilur félagsins við Reykjavíkurborg um framtíð íþróttastarfs í...
S04E66-Spjallid-LeonHill-Still1
S04E66 – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
Ástralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja, íslam og vaxandi áhrif...
S04E41-Harmageddon-Still1
S04E41 | Ólukka ríkisstjórnarflokkanna
Stórfurðuleg atburðarrás sem hófst á undarlegu tísti framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins hefur leitt til harðrar deilu á milli fyrrverandi forseta Íslands. Komið hefur...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.