S04E65 | Georg Lúðvíksson – Svona byggirðu upp fjárhagslegt frelsi

3. nóvember 2026 -

Georg Lúðvíksson, frumkvöðull og stofnandi Meniga og Spesíu, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni.

Hvernig getur venjulegt fólk byggt upp fjárhagslegt frelsi? Er skynsamlegt að geyma spariféð á bankareikningi eða ættu fleiri Íslendingar að fjárfesta? Og hvers vegna skiptir hegðun okkar og hugarfar gagnvart peningum jafnvel meira máli en tekjurnar sjálfar?

Georg hefur starfað við fjártækni og heimilisfjármál í nær tvo áratugi. Hann segir frá uppbyggingu Meniga, þeim áskorunum sem fylgja frumkvöðlastarfi og hvernig honum og eiginkonu hans tókst að ná fjárhagslegu frelsi með agaðri fjármálastjórn, sparnaði og fjárfestingum.

Í þættinum ræðir Georg jafnframt um nýtt fyrirtæki sitt, Spesíu, sem hefur það markmið að gera eignastýringu og langtímafjárfestingar aðgengilegar almenningi. Hann útskýrir hvers vegna hann telur marga Íslendinga fara á mis við ávöxtun með því að geyma allt spariféð á bankareikningum og hvers vegna háar þóknanir íslenskra fjárfestingarsjóða geti étið upp stóran hluta ávöxtunarinnar.

Einnig er rætt um áhættu á hlutabréfamörkuðum, mögulega bólu í kringum gervigreind, mikilvægi þess að dreifa fjárfestingum um heiminn og gagnrýni Georgs á skattastefnu íslenskra stjórnvalda.

Fróðlegt og aðgengilegt spjall um peninga, fjárfestingar, frumkvöðlastarf og frelsið sem fylgir því að hafa stjórn á eigin fjármálum.

S04E42 Harmageddon Still1
S04E42 – Um styrkhæf sjónarmið meirihlutans
Til er fólk sem telur að fjölmiðlastyrkur stjórnvalda eigi eingöngu að ná til þeirra miðla sem ganga í takt við ákveðnar meginstraumslínur í...
S04E67-Spjallid-Brynjar-Still1
S04E67 – „ÞETTA ER SPILLING!“ – Brynjar Karl hjólar í Reykjavíkurborg
Brynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari og forsvarsmaður íþróttafélagsins Aþenu, mætir í Spjallið og fer yfir harðvítugar deilur félagsins við Reykjavíkurborg um framtíð íþróttastarfs í...
S04E66-Spjallid-LeonHill-Still1
S04E66 – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
Ástralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja, íslam og vaxandi áhrif...
S04E41-Harmageddon-Still1
S04E41 | Ólukka ríkisstjórnarflokkanna
Stórfurðuleg atburðarrás sem hófst á undarlegu tísti framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins hefur leitt til harðrar deilu á milli fyrrverandi forseta Íslands. Komið hefur...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.