S02E32 | Eru hausthækkanir í Kauphöllinni eða krampakippir dvínandi hagkerfis?

10. október 2025 -

Þrátt fyrir að íslenskir fjárfestar séu fremur kjarklitlir og feli fé sitt á verðtryggðum reikningum hefur undanfarið birst vísir að hausthækkunum í Kauphöllinni. Þar hafa Amaroq og Oculus verið í broddi fylkingar en eftir viðtal Hluthafaspjallsins við Eld Ólafsson hefur verið mikið fjör með bréf félagsins. Áhugi fjárfesta er mikill og hluthafar Amaroq hafa upplifað ríflega 30% hækkun. Á sama tíma eru stýrivextir óbreyttir 7,5% í 4% verðbólgu. Um leið er neikvæður hagvöxtur síðastliðna 5 ársfjórðunga af síðustu 7 ársfjórðungum. Ritstjórarnir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson spyrja hvort ætti frekar að tala um kulnun atvinnulífsins fremur en kólnun því bjartsýni stjórnenda innan atvinnulífsins hefur hrunið frá því ríkisstjórnin tók við.

Seðlabankinn og fjármálaráðuneytið hafa ekki gengið í sömu átt að undanförnu en nú er gefið í skyn að leiðir liggi frekar saman. Er það vegna óbreyttra stýrivaxta og aukinnar skattheimtu ríkisstjórnarinnar – og það á meðan nánast enginn hagvöxtur hefur verið frá síðasta ársfjórðungi 2023? Það ríkir stagflation (stöðnun en á sama tíma verðbólga). Gengi Íslandsbanka og Skaga hafa ekkert breyst þótt viðræður um samruna standi yfir og við fáum Helga Vífil Júlíusson hlutabréfagreinanda hjá IFS/Reitun til að greina þá stöðu.

S04E33-Spjallid-Þorgerður-Still3_1.1.2
S04E33 | Þorgerður Katrín: Af hverju vill hún leiða Ísland inn í ESB?
Í þessu ítarlega viðtali sest Frosti Logason niður með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að ræða eitt stærsta pólitíska álitaefni samtímans: mögulega aðild...
S04E22-harmageddon-stilla_2.1.1
S04E22 | Útilokun Miðflokksins stefna frá Valhöll
Sjálfstæðisflokkurinn telur að leiðin upp úr sögulegu fylgishruni sé að ráðast gegn Miðflokki og mála hann upp sem óstjórntækan öfgaflokk. Þannig telur flokkurinn...
S03Exx-fullordins-ragnarerling_1.1.1
S03E16 | Segir að Heiða Björg hafi útrýmt heimilisleysi í Reykjavík
Ragnar Erling Hermannsson hefur barist fyrir málefnum heimilislausra í nokkur ár og hefur háð baráttu við fíkniefnadjöfulinn. Hann segir okkur sína sögu í...
S03E1x-fullordins-ingibjorgbirna-stilla_1.1.1 (1)
S03E15 | Missti báða foreldra sína með stuttu millibili skömmu eftir fermingu
Ingibjörg Birna Ársælsdóttir missti báða foreldra sína úr krabbameini, þegar hún var sjálf bara táningur. Í þætti dagsins segir hún okkur frá því...
Scroll to Top