S03E14 | Viðtal við Jón Þorstein, forstjóra Beru – og ruglið í danska Berlingske
24. apríl 2026 - Hluthafaspjallið
Það var líflegt viðtal okkar Sigurðar Más við Jón Þorstein Oddleifsson, forstjóra Beru, í nýjasta þætti Hluthafaspjallsins sem tekið var upp í hádeginu í dag. Bera var nafn á móður Egils Skallagrímssonar og það varð fyrir valinu þegar nýtt skipulag var kynnt á starfsemi Ölgerðarinnar í endaðan febrúar sl. Bera er núna móðurfélag samstæðunnar og skráð í Kauphöllina en undir fyrirtækið heyra núna fjögur félög og er Ölgerðin eitt þeirra. Jón Þorsteinn segir að með nýju skipulagi sé verið að skerpa línur og fá skýrari sýn og markmið á hverja einingu fyrir sig. Undirfélög Beru eru Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörur. Þá fara þeir Jón G. og Sigurður Már yfir stöðuna í efnahagsmálum og spyrja sig hvort ríkisstjórnin hafi misst tökin og fókusinn á efnahagsmálin með því að leggja alla áherslu núna á ESB-viðræður. Þá tæta þeir ruglið í danska Berlingske með ólígarkíana í sig. Öflugur þáttur að venju.

S03E12 | Engin fjölskylda með alkahólisma sem er ekki meðvirk