S04E14 | ESB spurningin leiðandi og byggð á umdeildum forsendum
14. apríl 2026 - Harmageddon
Þjóðaratkvæðagreiðslan vegna ESB umsóknarinnar virðist komin í uppnám þar sem landskjörstjórn gerir nokkuð alvarlegar athugasemdir við orðalag spurningarinnar sem þar verður lögð fyrir kjósendur. Hún er sögð fela í sér umdeildar forsendur og sé því í eðli sínu leiðandi. Þetta hafa gagnrýnendur sagt frá fyrsta degi en ríkisstjórnin hefur ekki viljað taka neitt mark á þeim röddum. Þá á ríkisstjórnin alveg eftir að gefa upp hvort hún sé samþykk því að íslenska stjórnkerfið hefji það aðlögunarferli sem svokallaðar aðildarviðræður fela í sér. Nú kemur betur og betur í ljós að ESB vegferð Valkyrjanna er ekki alveg jafn þaulhugsuð og gefið hefur verið til kynna.

S03E13 | Óstjórn efnahagslífsins og eikur fasteignamarkaðarins