S02E12 | Guðmundur hjá Brimi og María hjá Símanum í viðtali

11. apríl 2025 -

Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, rýna í kristalskúlu heimsviðskiptanna þar sem tollastefna Donalds Trumps Bandaríkjaforseta mótar umhverfið þessa dagana.  Hvernig endar tollastríðið og hvað er planið, erum við að tala um samningatækni eða tekjuöflun? Allt hefur þetta skapað miklar sveiflur og taugaveiklun á hlutabréfa- og hrávörumörkum en ritstjórarnir láta sér ekki bregða og kryfja málið á sinn einstaka hátt.

Þá komu tveir góðir gestir, þau Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf. sem var kosinn formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á aðalfundi samtakanna síðasta föstudag og María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans. Guðmundur hefur miklar efasemdir um hækkun á auðlindaskatti eins og ný ríkisstjórn setur málið upp núna og kemur með áhugaverð rök með vísun í lagabreytingar og þróun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Fáir eða engir þekkja þá sögu betur. Í seinni hluta þáttarins kemur María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, en hún er búin að ráðast í mikla stefnumótunarvinnu enda kallaði sala á grunnkerfum Símans á slíkt. Verkfræðingurinn María Björk er nýr stjórnandi í Kauphöllinni og hefur áhugaverða sýn á hlutverk stjórnandans. Stútfullur þáttur að venju.

S04E61-Spjallid-Reynir-Still
S04E61 | Reynir Grétarsson – Frá milljarðaviðskiptum til gagnslausra hugsana
Reynir Grétarsson er einn af athyglisverðari frumkvöðlum og fjárfestum Íslands. Hann var aðeins 24 ára þegar hann stofnaði ásamt félögum sínum fyrirtækið Lánstraust,...
S04E60-Spjallid-Kolbeinn-Still1
S04E60 | Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt
Hvað gerist þegar pólitísk hugmyndafræði fær að ráða för í vísindum og fjölmiðlar birta niðurstöður rannsókna án þess að spyrja gagnrýninna spurninga? Kolbeinn...
S04E59-Spjallid-Gunnar-Still1
S04E59 | „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan
Gunnar Dan, hlaðvarpsstjórnandi og rithöfundur, snýr aftur í Spjallið með nýja bók, UFO 202, og segir óhætt að fullyrða að mikið hafi breyst...
S04E37-Harmageddon-Still1
S04E37 | Sadó-masókismi íslenskra kjósenda
Í Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem sýna engin merki...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.