S02E17 | Finnur Oddsson í viðtali og allir vilja Kviku

29. maí 2025 -

Íslenski bankamarkaðurinn er eins og sveitarball þar sem slegist er um sætustu stelpuna. Kvika banki er óumdeilanlega í því hlutverki en fyrst bauð Arion upp á sameiningarviðræður en Íslandsbanki var fljótur að stíga inn á gólfið með hærra tilboði. Atburðarásin gerist hraðar en séð var fyrir enda ekki ljóst hver fer með eigendavaldið hjá Íslandsbanka nú þegar ríkið er búið að afhenda bréf sín til 31 þúsund kaupenda. Það er eftir miklu að slægjast, sameining getur gefið forskot og boðið upp á mikla hagræðingu. Hluthafar Kviku hlæja allan daginn í bankanum!

Finnur Oddsson, forstjóri Haga, rekur stærsta smásölufyrirtæki landsins en aðalfundur félagsins var á þriðjudaginn. Finnur mætti í Hluthafaspjallið og fór yfir tækifæri og áskoranir í þessum mikla rekstri en nánast allir landsmenn eiga viðskipti við félagið. Innan Haga eru mörg af verðmætustu verslunarmerkjum landsins og þar á meðal Bónus sem veltir á bilinu 85-90 milljörðum króna á ári. Hvernig er haldið utan um dýrmætastu vörumerki landsins? Hagnaður á hlut hefur verið að aukast en um leið skoða stjórnendur Haga tækifæri til vaxtar, bæði innanlands og erlendis.

S03E13-hluthafaspjallid-stilla
S03E13 | Óstjórn efnahagslífsins og eikur fasteignamarkaðarins
Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, rýna í efnahags- og viðskiptalífið en því miður eru fá merki að sjá um...
S04E22-Spjallid-Brynjar-Still2_1.1.1
S04E22 | Nauðsynlegt að búa til hvata til barneigna
Brynjar Níelsson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er nú kominn í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni og segir tíma til...
S03E08-arnarthor-stilla_1.2.2
S03E08 | Ann Marie Smith, Irish freedom advocate
What is really going on in Ireland now? Ann Marie Smith traces the roots of the unrest brewing in her native country to...
S04E21-Spjallid-Kristrun-Still1_1.1.2
S04E21 | Hvar er stóra planið?
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Við spyrjum hana út í stóra planið sem allir eru að bíða eftir,...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.