S03E04 | Atvinnulífið er byrjað að spila varnarleik
1. febrúar 2026 - Hluthafaspjallið
Það fer ekki á milli mála að atvinnulífið er byrjað að spila varnarleik og þess sjást víða merki. Atvinnuleysi er að aukast og fjöldauppsagnir að verða tíðari í fréttum; verðbólgan er ekki á niðurleið heldur uppleið; aukin spenna sýnist á stjórnarheimilinu; bankar eru byrjaðir að fá fyrirtæki í fangið og áfram mætti rekja. Hvernig leggst árið 2026 í stjórnendur og hversu mikilvægt er að þeir forgangsraði og geri réttu hlutina? Svo er það spurningin – er kostnaður við að eiga hlutabréfaviðskipti of hár á Íslandi miðað við erlendis. Þetta og margt fleira er í þessum nýjasta þætti Hluthafaspjallsins þar sem ritstjórarnir Jón G. og Sigurður Már fá til sín góða gesti; þau Hermann Guðmundsson, forstjóra Kemi, Snædísi Ögn Flosadóttur, forstöðumann á mörkuðum hjá Arion banka og Guðrúnu Högnadóttur, framkvæmdastjóra FranklinCovey á Íslandi.

S04E09 | Óstjórn í efnahagsmálum til að auka stuðning við ESB aðild