S03E14 | Viðtal við Jón Þorstein, forstjóra Beru – og ruglið í danska Berlingske

24. apríl 2026 -

Það var líflegt viðtal okkar Sigurðar Más við Jón Þorstein Oddleifsson, forstjóra Beru, í nýjasta þætti Hluthafaspjallsins sem tekið var upp í hádeginu í dag. Bera var nafn á móður Egils Skallagrímssonar og það varð fyrir valinu þegar nýtt skipulag var kynnt á starfsemi Ölgerðarinnar í endaðan febrúar sl. Bera er núna móðurfélag samstæðunnar og skráð í Kauphöllina en undir fyrirtækið heyra núna fjögur félög og er Ölgerðin eitt þeirra. Jón Þorsteinn segir að með nýju skipulagi sé verið að skerpa línur og fá skýrari sýn og markmið á hverja einingu fyrir sig. Undirfélög Beru eru Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörur. Þá fara þeir Jón G. og Sigurður Már yfir stöðuna í efnahagsmálum og spyrja sig hvort ríkisstjórnin hafi misst tökin og fókusinn á efnahagsmálin með því að leggja alla áherslu núna á ESB-viðræður. Þá tæta þeir ruglið í danska Berlingske með ólígarkíana í sig. Öflugur þáttur að venju.

S04E18-harmageddon-stilla_2.1.1
S04E18 | Nýtt faraldursleikrit sett á svið
Í þætti dagsins förum við yfir fyrstu fréttir af hinni skelfilegu hantaveiru en undirbúningur Alþjóðlegu heilbrigðismálastofnunarinnar fyrir næsta faraldur er nú í fullum...
S04E29-Spjallid-FrostiSig_1.1.1
S04E29 | Segir útgöngu geta orðið „praktískt ómögulega“ eftir upptöku evru
Frosti Sigurjónsson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann hefur nýverið gefið út Bókina um Evrópusambandið – hvað er í pakkanum, sem...
S03E15-fullordins-ingibergur-stilla_1.1.4
S03E14 | Smyglaði 1,5 kílói af hassi til Íslands árið 1972
Ingibergur Sigurðsson er með 4. stigs krabbamein og veit að hann á skammt eftir ólifað. Í þætti dagsins segir hann okkur frá lífi...
S04E28-Spjallid-UteKruger-Still1_1.1.1
S04E28 | Túrbókrabbamein eftir bólusetningar
Ute Krüger er þýskur læknir og meinafræðingur með 25 ára starfsreynslu. Á árunum 2005-2023 starfaði hún sem læknir við brjóstameinagreiningu, þar af í...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.