S03E45 | Segir Ríkissaksóknara hafa vitað af ólögmætum starfsháttum sérstaks saksóknara en ekkert aðhafst

18. desember 2025 -

Jón Óttar Ólafsson, afbrotafræðingur og fyrrum lögreglumaður, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hér fer hann ítarlega yfir starfshætti sérstaks saksóknara í kjölfar bankahrunsins en hann segir að rannsóknir í svonefndum hrunmálum hafi að hans mati ítrekað farið út fyrir lögbundnar heimildir og grundvallarreglur réttarríkisins. Hann var á árinu 2012, ásamt Guðmundi Hauki Gunnarssyni, kærður fyrir meint brot á þagnarskyldu er hann starfaði sem lögreglumaður hjá sérstökum saksóknara. Var þeim félögum gefið að sök að hafa lekið upplýsingum úr lögreglustörfum sínum til þrotabús Milestone. Málið var síðar fellt niður og skýringar gefnar út í fjölmiðlum um að Ríkissaksóknari teldi málið ekki líklegt til sakfellis. Jón Óttar hefur alltaf haldið því fram að hann hafi í yfirheyrslum vegna þessa máls árið 2012 upplýst ríkissaksóknara, að það sem þeir Guðmundur voru sakaðir um, hefðu verið viðtekin vinnubrögð hjá embætti sérstaks saksóknara. Hann segir að þeir hafi lýst fyrir Sigríði Friðjónsdóttur, Ríkissaksóknara, ferlum og atburðarrásum sem sýndu fram á að sérstakur hafi í mörgum tilfellum átt í ólögmætu samstarfi við bæði einkaaðila, sem og aðra opinbera aðila. Þessar frásagnir hafi hins vegar ekki ratað í skýrslur úr þessum yfirheyrslum og segir Jón Óttar það sýna að Sigríður hafi ákveðið að vísa málinu frá til að það myndi ekki valda embætti sérstaks saksóknara frekari vandræðum. Í þættinum eru spilaðar upptökur úr þessum yfirheyrslum sem varpa ljósi á málið.

Öll gögn Jóns Óttars á Dropbox

S04E02-harmageddon-stilla_2.1.1
S04E02 | Frjálsleg túlkun frjálslyndra nær nýjum hæðum
Þjóðskrá greinir frá því að fjölgun erlendra ríkisborgara hafi verið umtalsvert meiri en fjölgun íslenskra ríkisborgara á árinu sem var að líða, eins...
S03E02-fullordins-stilla_1.3.3
S03E02 | Hélt hann væri með MND sjúkdóminn
Egill Örn Rafnsson er trommuleikari sem hefur spilað með fjölda hljómsveita á Íslandi í gegnum árin. Hann segir okkur frá lífi sínu hingað...
S04E03-Spjallid-Samira-Still1_1.1.1
S04E03 | Viljum ekki flytja íslam til Íslands, við erum að flýja það
Samira Hosseini er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hún er Íranskur ríkisborgari með stöðu flóttamanns á Íslandi. Hún segist hafa upplýsingar um...
S04E02-Spjallid-SiggiG-Still2_1.1.2
S04E02 | Ríkissaksóknari þarf að svara
Sigurður G Guðjónsson Hæstarréttarlögmaður er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann segir orðið ljóst að margt sem embætti Sérstaks saksóknara hafi gert...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.