S04E18 | Ætlar að verða heimsmeistari í hnefaleikum

Emin Kadri er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er einn af örfáum atvinnuhnefaleikurum á Íslandi og hefur sett stefnuna á að verða heimsmeistari í sínum þyngdarflokki. Hann ætlar sér þannig að koma Íslandi rækilega á kortið í box íþróttinni. Emin er sonur innflytjenda á Íslandi en foreldrar hans komu til Íslands frá gömlu Júgóslavíu á tíunda áratugnum. Hann segir foreldra sína alltaf hafa lagt mikla áherslu á að Emin fengi tækifæri til að láta eitthvað úr sér verða og til þess hafi þau lagt sig fram við að leggja sitt af mörkum til þjóðfélagsins og blandast vel íslensku samfélagi. Emin er að fara keppa á fyrsta atvinnuhnefaleikakvöldi sem haldið hefur verið á Íslandi í 70 ár þann 10. apríl næstkomandi í Gamla Bíó en þar mun Kolbeinn Kristinsson, okkar helsta hnefaleikastjarna sem er ósigraður á sínum ferli, einnig berjast við Sasa Milenkovic sem er þekktur fyrir að hafa rotað flest alla sína andstæðinga.

S04E34-Harmageddon-Still
S04E34 | Hallalausu fjárlögin: Núllið þeirra – reikningurinn okkar
Ríkisstjórnin fagnar hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027. En þegar betur er að gáð fæst núllið meðal annars með hærri sköttum og gjöldum, rýrari...
S04E55-Debbie-Still5
S04E55 | Debbie Hayton: „Transkonur eru karlar – sættið ykkur við það“
Debbie Hayton er breskur kennari, blaðamaður og verkalýðsbaráttukona sem gekkst sjálf undir kynleiðréttingu árið 2012. Þrátt fyrir það hefur hún orðið ein ötulasta...
S04E33-Harmageddon-Still1
S04E33 | Við viljum ráða okkur sjálf
Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðunum erlendis við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Víða er henni fagnað sem verðskuldaðri áminningu til Evrópusambandsins um að...
S04E54-Spjallid-Bjarni-Still1
S04E54 | Bjarni Benediktsson: „Ríkisstjórnin er augljóslega í brekku“
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, sest hjá Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um stöðu efnahagsmála, uppnám á vinnumarkaði...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.