S04E33 | Við viljum ráða okkur sjálf

2. september 2026 -

Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðunum erlendis við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Víða er henni fagnað sem verðskuldaðri áminningu til Evrópusambandsins um að sífellt fleiri Evrópubúum hugnast illa sú aukna miðstýring sem sambandið stefnir að.
Viðbrögðin hér heima hafa þó verið af öðrum toga. Tapsárir já-sinnar virðast margir haldnir þeirri meinloku að Nei-ið hafi aðeins unnið vegna þess að auðvaldið og svokallaðir sjávargreifar hafi keypt sér niðurstöðuna og heilaþvegið þjóðina með áróðri. En Nei-sinnar komu úr öllum stjórnmálaflokkum og úr ólíkum áttum samfélagsins. Þeir fylgdu einfaldlega þeirri sannfæringu sinni að Ísland ætti ekkert erindi inn í Evrópusambandið.
Þjóðin hafnaði því að færa meira vald frá Íslandi og inn í miðstýrt evrópskt kerfi. Hún valdi að standa með sjálfsákvörðunarrétti sínum og þeirri einföldu hugmynd að Íslendingar eigi sjálfir að ráða málum sínum.
Í nýjasta þætti Harmageddon förum við yfir úrslitin, viðbrögðin heima og erlendis og þær langsóttu skýringar sem nú eru notaðar til að gera lítið úr upplýstri ákvörðun íslenskra kjósenda.

S04E34-Harmageddon-Still
S04E34 | Hallalausu fjárlögin: Núllið þeirra – reikningurinn okkar
Ríkisstjórnin fagnar hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027. En þegar betur er að gáð fæst núllið meðal annars með hærri sköttum og gjöldum, rýrari...
S04E55-Debbie-Still5
S04E55 | Debbie Hayton: „Transkonur eru karlar – sættið ykkur við það“
Debbie Hayton er breskur kennari, blaðamaður og verkalýðsbaráttukona sem gekkst sjálf undir kynleiðréttingu árið 2012. Þrátt fyrir það hefur hún orðið ein ötulasta...
S04E54-Spjallid-Bjarni-Still1
S04E54 | Bjarni Benediktsson: „Ríkisstjórnin er augljóslega í brekku“
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, sest hjá Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um stöðu efnahagsmála, uppnám á vinnumarkaði...
S04E53-Spjallid-RichardWerner-Still1
S04E53 | Richard Werner: ESB-aðild alvarleg mistök fyrir Ísland
Richard Werner, þýskur hagfræðiprófessor og alþjóðlega viðurkenndur sérfræðingur í bankastarfsemi, peningasköpun og peningamálum, varar Íslendinga eindregið við því að ganga í Evrópusambandið og...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.