S02E31 | Námugröftur og uppbygging á Grænlandi

3. október 2025 -

Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq, mætti í Hluthafaspjallið að þessu sinni. Námuvinnslufyrirtækið Amaroq hefur nú verið þrjú ár í kauphöllinni og er án efa eitt af mest spennandi og um leið óvenjulegustu félögum kauphallarinnar. Jarðfræðingurinn Eldur fer í þættinum yfir upphaf félagsins og hvað varð til þess að hann fór inn í Grænland en áður átti hann áhugaverðan feril þar sem hann kom að jarðhitauppbyggingu í Kína. Eldur segir gríðarleg tækifæri á Grænlandi og ef rétt sé haldið á spilum sé þar að finna eitt stærsta tækifæri íslensks viðskiptalífs. Á Grænlandi séu að skapast mörg tækifæri til að taka þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem er framundan þar. Landið er nú í hringiðu alþjóðlegrar athygli en náttúruauðlindir landsins eru miklar og ónýttar. Eldur fer yfir rekstur og framtíðarsýn félagsins en hann segir það vel fjármagnað og með traustan hluthafahóp. Námugröftur á Grænlandi kallar á mikla innviðauppbyggingu þar í landi og Amaroq er í einstakri stöðu til að stýra því. 

S04E33-Spjallid-Þorgerður-Still3_1.1.2
S04E33 | Þorgerður Katrín: Af hverju vill hún leiða Ísland inn í ESB?
Í þessu ítarlega viðtali sest Frosti Logason niður með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að ræða eitt stærsta pólitíska álitaefni samtímans: mögulega aðild...
S04E22-harmageddon-stilla_2.1.1
S04E22 | Útilokun Miðflokksins stefna frá Valhöll
Sjálfstæðisflokkurinn telur að leiðin upp úr sögulegu fylgishruni sé að ráðast gegn Miðflokki og mála hann upp sem óstjórntækan öfgaflokk. Þannig telur flokkurinn...
S03Exx-fullordins-ragnarerling_1.1.1
S03E16 | Segir að Heiða Björg hafi útrýmt heimilisleysi í Reykjavík
Ragnar Erling Hermannsson hefur barist fyrir málefnum heimilislausra í nokkur ár og hefur háð baráttu við fíkniefnadjöfulinn. Hann segir okkur sína sögu í...
S03E1x-fullordins-ingibjorgbirna-stilla_1.1.1 (1)
S03E15 | Missti báða foreldra sína með stuttu millibili skömmu eftir fermingu
Ingibjörg Birna Ársælsdóttir missti báða foreldra sína úr krabbameini, þegar hún var sjálf bara táningur. Í þætti dagsins segir hún okkur frá því...
Scroll to Top