S03E02 | Verðbólguskot skelfir hluthafa

17. janúar 2026 -

Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, fara yfir efnahagsástandið og skoða helstu tíðindi á hlutabréfamarkaði. Hlutabréfavísitalan sleikir nú 3000 stigin en hvað gerist næstu vikur, nú þegar við erum að upplifa verðbólguskot? Hlutabréfamarkaðurinn er búinn að þola hátt raunvaxtastig í alltof langan tíma og þyrstir í vaxtalækkun en nýjustu tölur auka ekki bjartsýni fyrir næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans, þann 4. febrúar næstkomandi. Eru það stjórnvöld með kerfisbreytingum á vörugjöldum og eldsneytisverði sem bera ábyrgð á þróun verðbólgunnar? Þá fara ritstjórarnir yfir nýjustu félög á matseðli fjárfestanna en allmörg félög eru nú á leiðinni í skráningu, þar á meðal Styrkás og Drangar sem hafa sterk tengsl við Skel fjárfestingafélag.

Í seinni hluta þáttarins er ítarlegt viðtal við Kristófer Oliversson, framkvæmdastjóra Center hótels og formann fyrirtækja í hótel-og gistiþjónustu. Kristófer hefur rekið hótelstarfsemi í Reykjavík í ríflega þrjá áratugi og þekkir þær miklu breytingar og áskoranir sem fylgja rekstrinum. Hann sá tækifæri í að byggja upp miðbæjarhótel í Reykjavík þar sem hann rekur nú níu hótel. Kristófer segir að sumu leyti sé erfiðast að eiga við breytingar stjórnvalda sem oft séu lítt fyrirsjáanlegar en hafi mikil áhrif á rekstrarstöðu ferðaþjónustunnar.

S04E33-Spjallid-Þorgerður-Still3_1.1.2
S04E33 | Þorgerður Katrín: Af hverju vill hún leiða Ísland inn í ESB?
Í þessu ítarlega viðtali sest Frosti Logason niður með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að ræða eitt stærsta pólitíska álitaefni samtímans: mögulega aðild...
S04E22-harmageddon-stilla_2.1.1
S04E22 | Útilokun Miðflokksins stefna frá Valhöll
Sjálfstæðisflokkurinn telur að leiðin upp úr sögulegu fylgishruni sé að ráðast gegn Miðflokki og mála hann upp sem óstjórntækan öfgaflokk. Þannig telur flokkurinn...
S03Exx-fullordins-ragnarerling_1.1.1
S03E16 | Segir að Heiða Björg hafi útrýmt heimilisleysi í Reykjavík
Ragnar Erling Hermannsson hefur barist fyrir málefnum heimilislausra í nokkur ár og hefur háð baráttu við fíkniefnadjöfulinn. Hann segir okkur sína sögu í...
S03E1x-fullordins-ingibjorgbirna-stilla_1.1.1 (1)
S03E15 | Missti báða foreldra sína með stuttu millibili skömmu eftir fermingu
Ingibjörg Birna Ársælsdóttir missti báða foreldra sína úr krabbameini, þegar hún var sjálf bara táningur. Í þætti dagsins segir hún okkur frá því...
Scroll to Top