S03E07 | Flug, fjarskipti og upplýsingagjöf

20. febrúar 2026 -

Kauphöllin hefur verið áfram stefnulítil en grænn föstudagur bjargar helgarstemningunni. Tíðindi úr fjarskiptaheiminum en Nova hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í tæknifyrirtækinu Ofar á 4,4 milljarða króna. Ritstjórarnir fara yfir forsendur kaupanna en ekki síður söguna um Nýherja, Origo og nú Ofar. Einnig var farið yfir þá hörðu gagnrýni sem kom fram á upplýsingagjöf Alvotechs frá hluthafa í félaginu sem sakar stjórnendur um ófullnægjandi upplýsingagjöf, ósanngjarna fjármögnun gagnvart öðrum hluthöfum og að hafa gefið markaðnum of bjarta mynd af stöðu fyrirtækisins. Ritstjórarnir telja að boltinn sé hjá stjórnendum félagsins sem skuldi markaðnum betri útskýringar. Í lok þáttarins kom síðan Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, og ræðir hann stöðu félagsins nú þegar enn á ný er farið að ræða um dulin verðmæti og upplausnarvirði. Bogi er bjartsýnn á rekstur Icelandair með breyttan flugflota en framundan eru einnig samningaviðræður um hvernig sala á ETS-kolefniseiningum snertir reksturinn.

S04E18-Spjallid-EminKadri-Still1_1.1.1
S04E18 | Ætlar að verða heimsmeistari í hnefaleikum
Emin Kadri er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er einn af örfáum atvinnuhnefaleikurum á Íslandi og hefur sett stefnuna á að...
S03E12-hluthafaspjallid-stilla
S03E12 | Þú tryggir ekki eftir á
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, er gestur í Hluthafaspjalli ritstjóranna að þessu sinni. „Þú tryggir ekki eftir á“ er þekkt slagorð Sjóvá í tryggingum.
S04E17-Spjallid-Heidar-Still1_1.1.1
S04E17 | Skattlagning til hagsældar dæmd til að mistakast
Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og stjórnarformaður Íslandsbanka, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann segir alveg skýrt að það sem fyrst og fremst...
S03E07-arnarthor-stilla_1.2.1
S03E07 | Á Ísland erindi inn í ESB?
Ísland og umheimurinn. Framtíð landsins er í okkar höndum. Treystum við okkur til að axla ábyrgð?
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.