S03E09 | Kreppuverðbólga orðin staðreynd

6. mars 2026 -

Þórður Pálsson, fjárfestingastjóri Sjóvár, fjallar um ástand og horfur í íslenska hagkerfinu í Hluthafaspjallinu með Sigurði Má Jónssyni. Síðast þegar Þórður mætti í Hluthafaspjallið, í nóvember síðastliðnum, hafði Seðlabankinn lækkaði vexti og fjárfestar höfðu ástæðu til að ætla að framhald yrði á því. Á þeim tíma var hætta á kreppuverðbólgu (stagflation) til umræðu en nú er hún orðin staðreynd. Ljóst er að verðbólgan er tregari og seigari en menn vonuðu og um leið er ríkið orðið leiðandi í launa- og verðlagshækkunum. Þórður bendir á þær mótsagnir sem nú má finna á hinu pólitíska sviði sem smitast út í hagstjórnina og bendir á umræðu í Þjóðhagsráði í vikunni þar sem þeir sem skipta þjóðarkökunni eru orðnir allsráðandi. Þórður sagði einnig að afleiðingar af verðtryggingu bóta gætu orðið meiri og kostnaðarsamari en séð var fyrir og skoðar málið út frá ávöxtunarkröfu lengstu ríkisskuldabréfanna og bendir á að þar með megi núvirða kostnaðinn upp á 200 milljarða króna. Því miður sé staðan núna þannig að í dag séu meiri líkur á vaxtahækkun en lækkun enda sé í raun enginn að taka ábyrgð á hagstjórninni og Seðlabankinn sitji einn með vandann. 

S04E20-harmageddon-stilla_2.1.1
S04E20 | Sjálfstæðisflokkurinn ekki kosinn til að vinna til vinstri
Þrátt fyrir að enginn málefnaleg rök liggi fyrir því, þá er Sjálfstæðisflokkurinn leitandi logandi ljósi af ástæðum til að vinna ekki með Miðflokki....
S04E31-Spjallid-Thorbjorg-Still1_1.1.1
S04E31 | Brottfararstöð nauðsynleg
Dómsmálaráðherra Íslands, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, er gestur Frosta Logasonar í ítarlegu og umdeildu viðtali um helstu hitamál íslenskra stjórnmála.Í viðtalinu ræðir Þorbjörg meðal...
S04E19-harmageddon-stilla_2.1.1
S04E19 | Sjálfstæðisflokkur undir þrýstingi Vóksins
Í Harmageddon þætti dagsins förum við yfir niðurstöðu borgarstjórnarkosninganna. Kjósendur gáfu til kynna skýran vilja til þess að breytt yrði um stefnu og...
S04E30-Spjallid-PallS-Still4_1.1.3
S04E30 | Ætlar ekki að hætta fyrr enn sannleikurinn kemur í ljós
Páll Steingrímsson, fyrrverandi skipstjóri hjá Samherja, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Héraðsdómur sýknaði nýverið ríkisútvarpið og Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi ritstjóra Kveiks,...
Scroll to Top
Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.