S04E17 | Skattlagning til hagsældar dæmd til að mistakast
26. mars 2026 - Spjallið með Frosta Logasyni
Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og stjórnarformaður Íslandsbanka, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann segir alveg skýrt að það sem fyrst og fremst valdi verðbólgu á Íslandi í dag sé útgjalda gleði ríkisstjórnarinnar og hækkun skatta. Þá segist hann ekki vongóður um að stjórnvöldum takist að snúa þeirri óheillaþróun við neitt í bráð enda sé á stefnuskrá þeirra að leggja einnig skatta á ferðaþjónustuna sem mun ótvírætt líka koma niður á öllum Íslendingum. Þá bendir hann einnig á að Kristrún forsætisráðherra hafi talað um að setja skatta á orkuauðlindir eins og hita og rafmagn þrátt fyrir að slíkt muni hafa mjög fyrirsjáanlegar afleiðingar. Í þessu viðtali ræðir Heiðar einnig ítarlega um afstöðu sína til hugsanlegrar aðildar Íslands og hvað hann telur þurfa að gera til þess að ná hér stjórn á bæði verðbólgu og efnahagsmálum almennt.

S04E18 | Ætlar að verða heimsmeistari í hnefaleikum