S04E56 | Sigmundur Davíð: „Við verðum að ná stjórn á landamærunum“

15. september 2026 -

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Í viðtalinu ræðir hann niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið og gagnrýnir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við ósigrinum. Hann segir stjórnvöld hafa misst af tækifærinu til að sameina þjóðina og telur fráleitt að halda lífi í gamalli aðildarumsókn eftir að þjóðin hefur sagt nei.

Þá fer Sigmundur hörðum orðum um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Hann segir skatt- og gjaldahækkanir bitna á venjulegu fólki, ýta undir verðbólgu og sýna að stjórnvöld hafi ekki vilja til að ráðast í raunverulegan niðurskurð ríkisútgjalda.

Stór hluti samtalsins snýst um útlendingamál, hælisleitendakerfið og þróunina í Evrópu. Sigmundur segir nauðsynlegt að semja ný útlendingalög frá grunni, koma í veg fyrir misnotkun kerfisins og ná stjórn á landamærum Íslands áður en vandinn verði óviðráðanlegur.

Einnig er rætt um uppgang AfD og annarra hægriflokka í Evrópu, áhrif innflytjenda á stjórnmálin, samband Íslands við Bandaríkin og viðbrögð íslenskra stjórnmálamanna við umdeildri kortamynd Donalds Trump. Sigmundur segir Trump hafa gaman af því að leika „nettröll“ og telur íslensk stjórnvöld hafa brugðist við málinu af óþarfa móðursýki.

Að lokum ræðir hann framtíð ríkisstjórnarinnar, efnahagsmálin og hvað Miðflokkurinn myndi gera öðruvísi kæmist hann til valda.

S04E59-Spjallid-Gunnar-Still1
S04E59 | „Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan
Gunnar Dan, hlaðvarpsstjórnandi og rithöfundur, snýr aftur í Spjallið með nýja bók, UFO 202, og segir óhætt að fullyrða að mikið hafi breyst...
S04E37-Harmageddon-Still1
S04E37 | Sadó-masókismi íslenskra kjósenda
Í Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem sýna engin merki...
S04E58-Spjallid-OliBjorn-Still2
S04E58 | Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“
Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri, er gestur Spjallsins að þessu sinni. Tilefnið er ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar...
S04E36-Harmageddon-Still
S04E36 | Ísland á bandarísku áhrifasvæði
Fyrir nokkrum vikum var ágengni Trumps gagnvart Grænlandi sögð sýna að Ísland gæti ekki lengur treyst Bandaríkjunum og yrði að leita skjóls í...
Scroll to Top

Persónuverndaryfirlit

Vafrakökur á brotkast.is
Brotkast.is notar vafrakökur á vefsvæði sínum til þess að bæta upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Vafrakökur eru notaðar í ýmsum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, tryggja gæði efnis sem þar er að finna og til þess að halda utanum tölfræði um notkun vefsvæðis og greiningar byggðar á þeim.

Hvernig get ég stjórnað vafrakökum?
Hægt er að slökkva á vafrakökum með því að fylgja leiðbeiningum sem koma upp á forsíðu. Einnig er hægt að stjórna vafrakökum með því að breyta stillingum í vafra (sjá til dæmis aboutcookies.org.uk). Athugaðu að ef þú eyðir öllum vafrakökum eða ef þú kemur í veg fyrir að vefsíður brotkast.is geti notað vafrakökur getur það haft áhrif á upplifun þína af notkun vefsins og ýmsa þá þjónustu sem þar kann að vera boðið upp á.